Besta yfirlýsing dagsins

Hér að neðan er besta yfirlýsing dagsins í dag. Læt hana fylgja með að fullu hér að neðan:

Aðgát skal höfð

Umræða um samdrátt og niðurskurð í atvinnulífinu með beinum afleiðingum fyrir heimili og fyrirtæki er mjög hávær og rökin fyrir henni skýr. Þetta er alvarleg umræða sem snertir unga sem aldna og þar af leiðandi er mikilvægt að vanda orðaval til að valda börnum, ungmennum, veikum og öldruðum ekki óþarfa kvíða. Þá þarf að gæta þess að umræða um þennan vanda á vinnustöðum sé á þann veg að fólk festist ekki í hringiðu umræðunnar heldur sinni vinnu og verðmætasköpun, sjálfum sér og samfélagi til hagsbóta.

Mikilvægt er að fjölmiðlar og aðrir vandi þessa umræðu og hafi í huga að flutningur fregna af válegum atburðum er bestur ef jöfnum höndum er fjallað um lausnir vandans þannig að fólk geti brugðist sem best við.

Það er brýnt að hafa í huga að óvönduð umræða um mál af þessu tagi er skaðleg heilsunni og því mikilvægt að vanda hana í hvívetna og láta hana ekki fara úr böndum.

Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins
Sigurður Guðmundsson landlæknir
Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar

Vonandi að sem flestir sem hafa áhrif á umræðuna og þannig á ástandið sjálft taki þessi orð alvarlega. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband