25.4.2007 | 00:20
Ballerínur í Borgarleikhúsinu
Í kvöld fórum við hjónin í Borgarleikhúsið til að sjá dætur okkar dansa ballet ásamt öðrum nemendum í Balletskóla Sigríðar Ármann sem í ár fagnar 55 ára afmæli. Þetta var í fjórða skipti sem við sjáum nemendur skólans ljúka vetrarstarfinu með glæsibrag en í fysta skipti sem við eigum tvær ballerínur í hópnum. Að vanda var þetta mjög gaman og alveg magnað hvernig Ástu Björnsdóttur og co. tekst að setja upp svona stóra sýningu þar sem hafa þarf stjórn á vel yfir hundrað ballerínum og tímasetja vel á annan tug dansatriða á rétt um klukkustund. Vel af sér vikið.
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:26 | Facebook
Athugasemdir
Þið eruð rík að eiga 2 ballerínur og eina prinsessu....síðar ballerínu!! Skemmtilegt!
Guðný M, 25.4.2007 kl. 22:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.