Færsluflokkur: Lífstíll
8.5.2008 | 23:38
Hjólað eins og vindurinn
Mér tókst í morgun að hjóla í vinnuna enda margir Símastarfsmenn miklir hjólagarpar og pressan því gífurleg. Tókst meira að segja að hjóla heim aftur sem er öllu erfiðara fyrir okkur Grafarholtsbúa. Held að hvor leið sé nálægt 10 km. Tók nokkur myndskeið upp á leiðinni á símann minn og hér fyrir neðan er eitt þeirra. Þarna er ég í Grafarvoginum í góðu veðri og fuglasöng gleypandi flugur eins og ég veit ekki hvað...
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)